Plejd snjallstýring
Uppsetning og stilling á Plejd fyrir heimili og sumarhús á Akureyri og um allt Norðurland. Ljós, gólfhiti og snjallstýring fyrir heita potta.
Hvað er Plejd?
Plejd er þráðlaust snjallkerfi sem notar raflagnirnar sem fyrir eru. Litlum stýrieiningum er komið fyrir á bak við rofa eða við búnaðinn, og eftir það er öllu stjórnað úr appi í símanum og úr rofunum á veggnum eins og áður.
Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun og hefur reynst vel, enda er það orðið mjög vinsælt á Íslandi.
Snjallstýring fyrir heita potta
Ertu með heitan pott með handvirkri stýringu? Við notum Plejd til að uppfæra pottastýringuna í snjallstýringu, og þá stjórnar þú pottinum úr appinu í símanum.
Hvað er hægt að gera með Plejd?
- Ljós. Dimmun, senur og tímastýringar, og útiljós sem fylgja sólargangi.
- Hiti. Plejd getur stýrt gólfhita. Hitastigið sést og er stillt á hitastillinum sjálfum eða í appinu.
- Heitir pottar. Snjallstýring í stað handvirkrar pottastýringar.
- Gardínur. Plejd getur stýrt mótorstýrðum gardínum, en þá þarf að gera ráð fyrir rafmagni að þeim frá byrjun. Það á því helst við í nýbyggingum eða þegar verið er að gera upp.
Hægt er að byrja í einu rými og bæta við seinna.
Hvað við gerum
- Ráðgjöf. Við förum yfir hvað þú vilt geta gert og hvaða búnað þarf.
- Uppsetning. Rafvirki þarf að setja Plejd upp. Við tengjum búnaðinn og göngum frá.
- Stilling. Við setjum upp appið með þér, með herbergjum, senum og tímastýringum, svo kerfið sé tilbúið þegar við förum.
Algengar spurningar
Þarf ég að vera með Plejd annars staðar í húsinu til að fá pottastýringu?
Nei. Pottastýringin stendur ein og sér. Ef þú vilt seinna bæta ljósum eða gólfhita við er það hægt.
Þarf ég netið til að Plejd virki?
Nei. Rofarnir og appið virka án nets þegar þú ert heima. Til að stjórna kerfinu að heiman, eða tengja það við Apple Home, Google Home eða Alexa, þarf að bæta við tengistöð (gateway).
Get ég notað rofana sem ég er með?
Oft, en það fer eftir gerð rofanna. Við skoðum það áður en við byrjum.
Hvað kostar þetta?
Það fer eftir því hvað á að stýra og í hve mörgum rýmum. Við gerum tilboð þegar við vitum hvað þú vilt.
Önnur þjónusta
KNX hússtjórnunarkerfi
Raflagnir í nýbyggingar og breytingar
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Viltu fá Plejd eða snjallstýringu á pottinn?
Hringdu eða sendu okkur línu og segðu okkur hvað þú vilt geta stjórnað.